
Komdu og upplifðu iðandi listalíf. Vinnslan verður haldin þann 19. Maí 2012 á Norðurpólnum þar sem amk 15 listamenn og hópar koma saman og setja upp verk sín í vinnslu. Áhorfendur fá því að upplifa sviðslistarverk, innsetningar, myndlist, vídeóverk, tónleika og fleira. Aðeins 500 krónur miðinn! Smelltu á "Viðburðir" hér að ofan til að lesa meira um Vinnsluna.
Leiksýningin FASTUR er frumsaminn einleikur án orða sem frumsýndur verður þann 17.maí klukkan 20.00 á Norðurpólnum. Þetta er fyrsta sjálfstæða leikverkið eftir Benedikt Karl Gröndal en hann lærði úti í Danmörku í leiklistarskóla sem sérhæfir sig í kómískri og „physical“ leiklist. Leikstjórn er í höndum Árna Kristjánssonar. Þú getur lesið meira um sýninguna með því að smella á "Viðburðir" hér að ofan.
Listaskólinn á Norðurpólnum stendur fyrir bráðskemmtilegum sumarnámskeiðum! Ertu þú 6-16 ára, hress og villt verða hressari? Skráðu þig þá á vikunámskeið í Listaskólanum. Lestu meira um námskeiðin með því að smella á "Námskeið" hér að ofan.